Description

Merino Nylon Sock er mjög gott og sterkt sokkagarn, 75% merínó ull og 25% nylon gera garnið að mjúku en í senn mjög endingargóðu garni, sem hentar með eindæmum vel í sokka.  Merino Nylon Sock er handlitað garn. Hver 100g hespa hefur 425m og er hæglega hægt að ná sokkapari á dömu og jafnvel barnasokkapari einnig.

Þetta garn er sjálfmynstrandi sé það prjónað í sokka eða vettlinga.

Garn: 75% merino ull (sw) + 25% nylon
Þyngd: 100g
Lengd: 425m
Uppbygging: 4ply / fingering/sock
Tillaga að prjóna/nála stærð:  2.5mm – 3.5mm
Þvottaleiðbeiningar: Handþvottur uppúr volgu/köldu vatni eða léttur hringur í vél. Leggið flatt til þerris.