Námskeið í prjóni – Ankers peysa

4 skipti kl. 18-20 á eftirfarandi þriðjudögum.

29.september

6. október

13. október

20. október

Ætlum að prjóna saman Anker‘s Sweater eftir PetiteKnit og kemur uppskriftin í stærðum 0-12 ára og er á íslensku. 

Anker‘s munstrið er mjög byrjendavænt og kennir flest allt sem kennt er á byrjendanámskeiði og ákváðum við því að hafa þetta sem verkefnið.
Lærið að fitja upp, prjóna slétt og brugðið, auka út, laska útaukningu, taka saman, fella af og fleira.

Meðan á námskeiði stendur fá þáttakenndur afslátt af garni og fylgihlutum.


Innifalið í námskeiði er uppskrift rafræn og útprentuð, prjónamerki, boðið verður uppá kaffi og maul öll skiptin.

Verð 20.000 kr. Greiðsla tryggir þátttöku námskeiðs.

 

Peysuprjón – Ankers. – Sigurbjörg.net