Áframhaldandi prjónanámskeið fyrir byrjendur og lengra komna.

Námskeið í prjóni.

4 skipti kl. 18-20 á eftirfarandi þriðjudögum.

27. október

3. nóvember

10. nóvember

24. nóvember

Ætlum að prjóna saman Anker‘s Sweater eftir PetiteKnit og kemur uppskriftin í stærðum 0-12 ára og er á íslensku. 

Anker‘s munstrið er mjög byrjendavænt og kennir flest allt sem kennt er á byrjendanámskeiði og ákváðum við því að hafa þetta sem verkefnið.
Lærið að fitja upp, prjóna slétt og brugðið, auka út, laska útaukningu, taka saman, fella af og fleira.

Meðan á námskeiði stendur fá þáttakenndur afslátt af garni og fylgihlutum.

Innifalið í námskeiði eru prjónamerki og boðið verður uppá kaffi og maul öll skiptin.

Einnig er í boði að prjóna annað byrjendavænt verkefni og/eða verkefni við hæfi hvers og eins. 

Verð fyrir þessi 4 kvöld er 20.000.

Ath. að þetta eru 3 þriðjudagar í röð svo er einn í fríi áður en síðasti tíminn er.

Áframhaldandi prjónanámskeið fyrir byrjendur og lengra komna. – Sigurbjörg.net