Handverk, innblástur og samfélag
Sigurbjörg er handverksverslun sem sérhæfir sig í sölu á garni og handverksvörum fyrir prjón, hekl og aðra handavinnu. Markmið okkar er að veita viðskiptavinum aðgang að vönduðum vörum og faglegri ráðgjöf, óháð því hvort um byrjendur eða lengra komna sé að ræða.
Í gegnum árin hefur Sigurbjörg einnig boðið upp á námskeið og viðburði í handavinnu, þar sem áhersla er lögð á fræðslu, skapandi vinnu og notalega stemningu. Námskeiðin eru frábær leið til að öðlast nýja þekkingu og kynnast fólki með sameiginleg áhugamál.
Verslunin er staðsett í Mosfellsbæ og leggur áherslu á persónulega þjónustu, fagmennsku og að skapa jákvæða upplifun fyrir alla sem heimsækja okkur.


Hvað finnurðu hjá Sigurbjörgu?.
Gæðagarn fyrir prjón og hekl
Handverkáhöld og fylgihluti
Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
Persónulega þjónustu og ráðgjöf
Hlýlegt og skapandi umhverfi
