
Öryggisaugu 2 í pakka, 12mm glimmer með augnhárum
9. september, 2026
Öryggisaugu 2 í pakka, 14mm glimmer með augnhárum
9. september, 2026Námskeið í prjóni.
4 skipti kl. 18-20 á eftirfarandi þriðjudögum.
27. október
3. nóvember
10. nóvember
24. nóvember
Ætlum að prjóna saman Anker‘s Sweater eftir PetiteKnit og kemur uppskriftin í stærðum 0-12 ára og er á íslensku.
Anker‘s munstrið er mjög byrjendavænt og kennir flest allt sem kennt er á byrjendanámskeiði og ákváðum við því að hafa þetta sem verkefnið.
Lærið að fitja upp, prjóna slétt og brugðið, auka út, laska útaukningu, taka saman, fella af og fleira.
Meðan á námskeiði stendur fá þáttakenndur afslátt af garni og fylgihlutum.
Innifalið í námskeiði eru prjónamerki og boðið verður uppá kaffi og maul öll skiptin.
Einnig er í boði að prjóna annað byrjendavænt verkefni og/eða verkefni við hæfi hvers og eins.
Verð fyrir þessi 4 kvöld er 20.000.
Ath. að þetta eru 3 þriðjudagar í röð svo er einn í fríi áður en síðasti tíminn er.

